Reglugerð eftirmenntunarsjóða í rafiðnaðargreinum

Reglugerð eftirmenntunarsjóða í rafiðnaðargreinum
um styrki vegna námskeiða erlendis

 Gr. 1
Vilji félagsmaður sækja námskeið erlendis á hann rétt á því að sækja um styrk í viðkomandi eftirmenntunarsjóð. Einungis er heimilt að veita styrki ef um er að ræða fagtengd námskeið. sem eru á því sérsviði sem viðkomandi starfar, og námskeiðið er ekki haldið í Rafiðnaðarskólanum eða hérlendis og ekki séu líkur á að það verði haldið þar í náinni framtíð.

Gr. 2.
Réttur til styrks skapast eftir að greitt hefur verið af viðkomandi í eftirmenntunarsjóð samfellt í 3 ár eða lengur

Gr. 3.
Styrkur getur aldrei orðið hærri upphæð en sem nemur Apex fluggjaldi til Kaupmannahafnar, sama hvert námskeið er sótt.

Gr. 4.
Ekki má líða skemmri tími en 4 ár á milli styrkja af þessu tagi, þó er heimilt í sérstökum tilfellum að veita undanþágu um styrkveitingu, t.d. ef um framhaldsnámskeið sé að ræða. Hámark styrkja skal þá vera hlutfallslega lægra. T.d. ef 2 ár líða á milli skal hámark styrks vera helmingur Apex flugfargjalds til Kaupmannahafnar.

Gr. 5.
Sæki viðkomandi námskeið í Rafiðnaðarskólann, skal telja tíma, sbr. gr. 4 frá síðasta námskeiði sem sátt var.

Gr. 6.
Sá aðili sem fær styrk til námsferðar, skal ef þess er óskað skila Rafiðnaðarskólanum greinargerð innan mánaðar frá heimkomu, um það nám sem kennt var á viðkomandi námskeiði. Styrkþegi skuldbindur sig til þess að leggja fram námsefni sé þess óskað, til notkunar í grein í blöð rafiðnaðarmanna eða erindi um efnið á félagsfundi eða í Rafiðnaðarskólanum.

Þannig samþykkt í desember 1993