Verðlaunahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík 2012
Eftirtaldir fengu verðlaun afhent og óskum við þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur. Það vekur einnig athygli að af 9 nýsveinum eru 3 konur í hópnum sem sýnir og sannar að rafiðngreinar eru einnig góður vettvangur fyrir konur enda krefjast störf rafiðnaðarmanna einna fremst mikillar rökhugsunar og henta því jafnt báðum kynjunum. Konur ættu nýta sér þessa hvatningu og sækja sér rafiðnmenntun enda góð störf með góðum launum í boði!
Iðnaðarmaður ársins að þessu sinni er Ragnar Axelsson ljósmyndari. Iðnaðarmaður ársins er tilnefndur úr flokki þeirra iðnaðarmanna sem hafa unnið gríðarlega gott starf í þágu löggiltra iðngreina. Að lokum var veitt viðurkenning fyrir samstarf hönnuða og framleiðenda en að þessu sinni voru það Go Form Design Studio og Brúnás innréttingar sem hlutu viðurkenninguna fyrir þeirra framlag í hönnun og framleiðslu á íslenskum innréttingum. Óskum við öllum til hamingju með flottan árangur. Fleiri myndir eru aðgengilegar í myndaalbúmi hér á heimasíðunni. |


