Úttektarskýrsla um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða
Bent var á að þegar fjallað er um tap sjóðanna þá verði að halda því til haga að í stóru eignasafni þá þarf að forðast að horfa eingöngu á tap-liðina. Því þegar áhættu eignasafnsins er dreift þá felst áhættudreifingin í því að reyna að hámarka ávöxtun fjármagnsins og forðast þá áhættusamar fjárfestingar. Fjárfest var erlendis til þess að dreifa áhættunni þó svo erlend fjárfesting sveflist í raun og veru mikið í samræmi við gengi gjaldmiðla og þá helst íslensku krónunnar. Því verður að horfa á heildareignasafnið ef menn vilja sjá raunverulega stöðu sjóðanna. Fjallað verður áfram um skýrsluna á næstu fundum miðstjórnar og kom það fram að sjóðsfélagafundir verði haldnir á næstunni til þess að fjalla um stöðuna og úttektarskýrsluna. |


