Atvinnuleysi í janúar

VMSTAtvinnuleysi á meðal félagsmanna RSÍ helst lítið breytt á milli mánaða, í desember voru 126 manns í atvinnuleit, í janúar voru atvinnuleitendur 125. Hlutfall atvinnuleitenda á meðal rafiðnaðarmanna er því rétt um 2,5% líkt og undanfarna mánuði. Skiptingu á milli félaga má sjá í töflu hér að neðan.

Félag tæknifólks í rafiðnaði FTR 51
Rafvirkjafélag Norðurlands RFN 3
Félag íslenskra rafvirkja FÍR 28
Félag rafeindavirkja FRV 19
Félag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi FRS 4
Rafiðnaðarfélag Suðurnesja RFS 1
Félag íslenskra símamanna FÍS 18
Félag sýningarmanna við kvikmyndahús FSK 1
Samtals:   125