SamninganefndirReglugerð um störf og skipan samninganefnda1. grein Við upphaf kjarasamninga skal miðstjórn leita heimilda fyrir því hjá viðkomandi aðildarfélögum RSÍ, að sambandið sjái um að kosið sé í samninganefndir og að þær starfi samkvæmt þessum reglum.
2. grein Heimildir aðildarfélags um samninganefndir og gerð viðræðuáætlana skulu gilda
3. grein Samninganefndir skal ætíð kjósa áður en viðræðuáætlanir eru gerðar.
4. grein Formaður samninganefndar skal skipaður af RSÍ.
5. grein Að öllu jöfnu skal boða bæði aðal- og varamenn á samningafundi.
6. grein Samninganefnd kjósi sér ritara sem sér um að taka saman fundargerðir af öllum fundum nefndarinnar.
7. grein Samninganefndir skulu reglulega gera stjórnum og trúnaðarráðum viðkomandi
8. grein. Samninganefndir bera ábyrgð á að kröfugerðir séu teknar saman og frágengnar
9. grein Samninganefnd skal reglulega halda fundi með þeim félagsmönnum sem hún starfar fyrir og kynna gang mála við endurnýjun kjarasamnings.
10. grein Samninganefndum er því aðeins heimilt að undirrita kjarasamninga að samþykki stjórna og trúnaðarráða viðkomandi aðildarfélaga RSÍ liggi fyrir og að haft verði samráð við miðstjórn RSÍ.
11. grein Aðgerðir til að þrýsta á að kjarasamningar náist skulu ætíð háðar samþykki stjórna og trúnaðarráða viðkomandi aðildarfélaga RSÍ og ákveðnar í samráði við miðstjórn RSÍ.
Þannig staðfest í stjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga RSÍ haustið 1996 og staðfest í miðstjórn RSÍ 11. okt. 1996. |


