Rafiðnaðarsamband Íslands veitir margvíslega styrki til félagsmanna sinna.
Kostnaðarsamar læknisaðgerðir
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Styrktarsjóði er heimilt að taka þátt í kostnaði félagsmanna vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða.
Styrkur er metin hverju sinni en er þó ekki hærri en 40% af útlögðum kostnaði, hafi kostnaður verið hærri en kr. 85.300. þó aldrei hærri styrk en kr. 80.000, auk þátttöku í ferðakostnaði sé um það að ræða. Styrk samkvæmt þessari reglu er að jafnaði ekki hægt að veita sama félagsmanni nema einu sinni á þriggja ára tímabili.
Undir kostnaðarsamar læknisaðgerðir teljast t.d.glasa-eða tæknifrjóvgun, laser aðgerð á augum eða dvöl á heilsustofnun í Hveragerði svo dæmi séu tekin.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila.
Umsóknareyðublöð
Gleraugnastyrkur
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga við kaup á gleraugum einu sinni á fjögurra ára fresti.
Styrkurinn er að hámarki kr. 40.000 greiðslan nemur allt að helmingi framlags kostnaðar en þó aldrei hærri styrkur en kr. 40.000.- Gleraugnastyrkur skerðir ekki rétt til líkamsræktarstyrks.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Ljósrit af sjónmælingu frá augnlækni eða sjóntækjafræðingi og löggilt frumrit af kvittunar fyrir gleraugum.
Umsóknareyðublöð
Krabbameinsskoðun
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Greitt er fyrir skoðun allt að 4.000 kr.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila.
Umsóknareyðublöð
Hjartavernd-áhættumat
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Greitt er 50% af skoðunnargjaldi.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila.
Umsóknareyðublöð
Sjúkraþjálfun/sjúkranudd
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Greitt er fyrir allt að 25 skipti árlega. Niðurgreiðsla er 1.500 kr pr skipti sé greitt 2.000 kr. eða meira fyrir tímann.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Ljósrit af beiðni frá lækni. Löggilt frumrit af dagsettri kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala beggja aðila, tímabil meðferðar, fjöldi skipta og upphæðin sem greidd var.
Umsóknareyðublöð
Líkamsræktarstyrkur
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum, sundstöðum, dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta. Að því tilskyldu að það sé til 3ja mánaðar eða lengur. Greiðslan nemur allt að helmingi framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 20.000 á hverju almanaksári.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.
Umsóknareyðublöð
Ferðastyrkur
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Til að jafna aðstöðu þeirra sem búa á landsbyggðinni tekur sjúkrasjóður þátt í ferðakostnaði þeirra sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði. Sækja verður um styrk til TR.
Hafni TR greiðslu er greitt fyrir 40 til 100 km kr. 3000, 100 til 250 km. kr. 6000, 250 til 400 km. kr. 10.500 og 400 km og lengra kr. 15.000. Hámark er greitt fyrir 25 ferðir á ári.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila. Afrit af höfnunarbréfi TR.
Umsóknareyðublöð
Námskeiðsstyrkur
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Styrkur að hámarki kr. 20.000 á ári, til að sækja almenn námskeið. Endurgreitt er helmingur þeirrar upphæðar er kvittun segir til um, en aldrei hærri upphæð en kr.20.000 einu sinni á ári.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af kvittun fyrir námskeiði.
Umsóknareyðublöð
Sálfræðingar - viðtalsmeðferð
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna viðtalsmeðferðar hjá sálfræðingi.
Greitt er 40% af kostnaði hvers tíma allt að 25 skipti.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Löggilt frumrit af dagsettri kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala beggja aðila, tímabil meðferðar, fjöldi skipta og upphæðin sem greidd var.
Umsóknareyðublöð
Eingreiddar dánarbætur
Við andlát félagsmanns er greitt til aðstandanda allt að kr. 497.584.- vegna útfararkostnaðar, enda hafi viðkomandi verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði þegar dauða hans bar að höndum.
Greiða eftirlifandi maka eða forráðamanni barns félagsmanns fyrir eitt barn undir 18 ára aldri á framfæri viðkomandi kr. 895.651.- og kr. 447.826.- með hverju barni eftir það.
Heimilt er að greiða vegna barna allt til 21 árs aldurs, enda hafi barn sannarlega verið á framfæri sjóðfélaga og er ekki á vinnumarkaði.
Eingreiddar dánarbætur vegna andláts félagsmanns 75 ára eða eldri er kr. 373.188
Eingreiddar dánarbætur vegna andláts félagsmanns 80 ára eða eldri er kr: 279.891
Framvísa þarf afriti af dánarvottorði.
Umsóknareyðublöð