- Dagpeningar greiðast frá þeim tíma að lögboðinni eða samningsbundinni kaupgreiðslu frá atvinnurekanda lýkur. Endurnýja þarf umsókn um dagpeninga við lok bótatímabils vari veikindi áfram.
- Framkvæmdastjórn sjóðsins metur hvort dagpeningar eru greiddir lengur en eitt bótatímabil og hvaða dagpeningar eru þá greiddir.
- Lágmarksdagpeningar eru kr. 4.976.-
- Upphæð dagpeninga skal tryggja 80% af meðallaunum viðkomandi síðustu fimm mánuði fyrir veikindi, skv. iðgjaldayfirliti til Styrktarsjóðs. Hafi verulegar breytingar orðið á launum viðkomandi yfir þetta fimm mánaða tímabil er heimilt að lengja viðmiðunartímann í allt að 10 mánuði. Mánaðarleg greiðsla samkvæmt þessari reglu getur þó ekki numið hærri upphæð en kr. 453.848 á mánuði.
- Sé um að ræða greiðslu vegna tímabundinnar örorku er heimilt að skerða bætur Styrktarsjóðs sem því nemur. Sjúkra- eða slysadagpeningar Tryggingarstofnunar skerða ekki dagpeninga sjúkrasjóðs.
- Vegna langvarandi veikinda maka eða barna enda missi sjóðfélagi launatekjur vegna þeirra. Sé um veikindi barna að ræða þá hafi 10 daga rétturinn verið fullnýttur, og maki eigi ekki tök á að annast barnið. Vegna veikinda maka skal við það miðað að launamissir vegna veikindi hafi staðið í a.m.k. 2 vikur.
- Heimilt er sjóðstjórn að greiða hluta dagpeninga ef sjóðfélagi getur ekki vegna sjúkdóms eða slyss stundað fulla vinnu.
- Dagpeningar greiðast ekki þegar um varanlega örorku eða ellihrumleika er að ræða.
- Félagsmenn er fá greidda sjúkradagpeninga ber að mæta í viðtal hjá ráðgjafa starfsendurhæfingarsjóðs verði þess óskað.
Dæmi um sjúkra- og slysadagpeninga sjúkrasjóðs RSÍ
| Tekjur fyrir veikindi eða slys |
Dagpeningar Sjúkrasjóðs |
| 100.000 |
80.000 |
| 200.000 |
160.000 |
| 300.000 |
240.000 |
| 600.000 |
453.848 (hámark) |
|