Fögnum alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag 8. mars. Enn er verk að vinna í jafnréttismálum ekki síst á tímum heimsfaraldurs.
Við höldum daginn hátíðlegan á Íslandi en þó með öðru sniði en verið hefur. Í tilefni dagsins bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til rafræns hádegisfundar 8. mars frá kl. 12:00–13:00. Yfirskrift fundarins er Konur í kafi - kynjajafnrétti á tímum heimsfaraldurs.
Við hvetjum alla til að láta sig jafnréttismál varða og taka þátt.
Fundur er túlkaður á ensku.
Slóð á viðburð: https://us02web.zoom.us/j/85277321283
Dagskrá:
"Bakslag eða afhúpun: Heimilislíf og jafnrétti í fyrstu bylgju Covid frá sjónarhóli mæðra." Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við HA, og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við menntavísindasvið HÍ.
"Framlínukonur á tímum Covid." Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
"Spritta, tengjast, vinna." Donata Honkowicz-Bukowska, grunnskólakennari og kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál.
Umræður
Fundarstjóri er Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Viðburðurinn verður tekinn upp og aðgengilegur fljótlega eftir fundinn.