Styrkir

Rafiðnaðarsamband Íslands veitir margvíslega styrki til félagsmanna sinna.

Sótt er um styrki á „Mínum síðum“ einnig er hægt að sækja um hér eða með því að skila umsóknum á skrifstofu RSÍ á Stórhöfða 31.

Greitt er úr styrktarsjóði mánaðarlega, síðasta virka dag mánaðar. Gögn þurfa að hafa borist sjóðnum fyrir 20. dag hvers mánaðar.

Félagar, sem eru frá vinnu vegna veikinda, eru hvattir til að kynna sér rétt sinn til sjúkradagpeninga hjá Sjúkratryggingum Íslands. Greiðslur sjúkradagpeninga hjá Sjúkratryggingum Íslands hafa ekki áhrif til lækkunar á greiðslu sjúkradagpeninga hjá RSÍ.

Þegar veikindi herja á félaga í RSÍ og veikindaréttur samkvæmt kjarasamningi við vinnuveitanda er fullnýttur tekur Sjúkrasjóður RSÍ við og greiðir félaga út sjúkradagpeninga. Sjóðurinn bætir þannig launatap félaga þegar hefðbundnir veikindadagar hjá vinnuveitanda eru búnir.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.

  • Bótatímabil: 120 dagar. Endurnýja þarf umsókn um dagpeninga við lok bótatímabils vari veikindi áfram. Framkvæmdastjórn sjóðsins metur hvort dagpeningar eru greiddir lengur en eitt bótatímabil og hvaða dagpeningar eru þá greiddir.
  • Sjúkradagpeningavottorð: Læknisvottorð um óvinnufærni vegna veikinda.
  • Veikindaréttarvottorð: Vottorð frá vinnuveitanda um greiðslur í veikindum.
  • Sjúkradagpeningar: Upphæð dagpeninga skal tryggja 80% af meðallaunum viðkomandi síðustu fimm mánuði fyrir veikindi, skv. iðgjaldayfirliti til Styrktarsjóðs. Hafi verulegar breytingar orðið á launum viðkomandi yfir þetta fimm mánaða tímabil er heimilt að lengja viðmiðunartímann í allt að 10 mánuði. Mánaðarleg greiðsla samkvæmt þessari reglu getur þó ekki numið hærri upphæð en kr.1.105.009.- á mánuði (frá 1. júlí 2023).
  • Skerðing sjúkradagpeninga: Heimilt er að skerða styrki í hlutfalli við starfshlutfall félagsmanns. Fullt starf er miðað er við lágmarkstaxta kjarasamnings viðkomandi. Hjá einyrkjum er fullt starf miðað við lágmarksgjald sem RSÍ ákveður hverju sinni.
  • Persónuafsláttur: Hægt er að nýta persónuafslátt með því að sækja um hann, eyðublað.
  • Launaseðlar: Heimilt er að óska eftir launaseðlum síðustu mánaða. Dagpeningar greiðast frá þeim tíma að lögboðinni eða samningsbundinni kaupgreiðslu frá atvinnurekanda lýkur.
  • Sjúkradagpeningar falla niður: Réttur til sjúkradagpeninga og styrkja fellur niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
  • Veikindi maka og barna: Vegna langvarandi veikinda maka eða barna enda missi sjóðfélagi launatekjur vegna þeirra. Sé um veikindi barna að ræða þá hafi 10 daga rétturinn verið fullnýttur, og maki eigi ekki tök á að annast barnið. Vegna veikinda maka skal við það miðað að launamissir vegna veikindi hafi staðið í a.m.k. 2 vikur.
  • Tímabundin örorka: Sé um að ræða greiðslu vegna tímabundinnar örorku er heimilt að skerða bætur Styrktarsjóðs sem því nemur. Sjúkra- eða slysadagpeningar Tryggingarstofnunar skerða ekki dagpeninga sjúkrasjóðs.
  • Hlutastarf: Heimilt er sjóðstjórn að greiða hluta dagpeninga ef sjóðfélagi getur ekki vegna sjúkdóms eða slyss stundað fulla vinnu.
  • Varanleg örorka: Dagpeningar greiðast ekki þegar um varanlega örorku eða ellihrumleika er að ræða.
  • Viðtal við starfsendurhæfingarráðgjafa: Félagsmenn er fá greidda sjúkradagpeninga ber að mæta í viðtal hjá ráðgjafa starfsendurhæfingarsjóðs verði þess óskað.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Dæmi um sjúkra- og slysadagpeninga sjúkrasjóðs RSÍ

Tekjur fyrir veikindi eða slysDagpeningar Sjúkrasjóðs
300.000240.000
400.000320.000
500.000400.000
700.000560.000
800.000640.000
1.309.3691.105.009 (hámark)

Eyðublöð: Vottorð launagreiðanda – Nýting persónuafsláttar vegna sjúkradagpeninga

Reglugerð sjúkrasjóðs RSÍ

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Styrktarsjóði er heimilt að taka þátt í kostnaði félagsmanna vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða.
Styrkur er metinn hverju sinni en að hámarki 40% af útlögðum kostnaði, hafi kostnaður verið hærri en kr. 100.000, en þó að hámarki  kr. 110.000, auk þátttöku í ferðakostnaði sé um það að ræða.  Styrkur er veittur einu sinni á þriggja ára tímabili.
Undir kostnaðarsamar læknisaðgerðir teljast  t.d. laser aðgerð á augum eða dvöl á heilsustofnun í Hveragerði. Tannlækningar/”implant” aðgerðir falla ekki undir þennan styrk.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda og yfirlit um greiðsluþátttöku síðustu 12 mánuði frá Sjúkratryggingum Íslands. Yfirlit má nálgast á sjukra.is

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga við kaup á gleraugum einu sinni á þriggja ára fresti.
Styrkurinn er að hámarki kr. 80.000, greiðsla nemur allt að helmingi framlags kostnaðar en þó aldrei hærri  en kr. 80.000.-  Gleraugnastyrkur skerðir ekki rétt til  líkamsræktarstyrks.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Ljósrit af sjónmælingu frá augnlækni eða sjóntækjafræðingi
  • Greiðslukvittun fyrir gleraugnakaupum þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Greitt er fyrir skoðun allt að 33.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Greitt er 33.000 kr. af skoðunargjaldi á hverju 12 mánaða tímabili.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. siðustu 6 mánuði
Greitt er 40% af útlögðum kostnaði, að hámarki kr. 160.000, fyrir alls 4 meðferðir.
Ekki er greiddur kostnaður vegna lyfja og eftirlits.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. siðustu 6 mánuði
Greitt er 50% af útlögðum kostnaði, að hámarki kr. 33.000 á 3ja ára fresti, vegna stoðtækja s.s. innleggja í skó, hækja og annarra stoðtækja.
Ekki er greiddur styrkur vegna göngugreiningar.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Reikningur og greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. siðustu 6 mánuði
Styrkur er veittur vegna kaupa á heyrnartækjum. Greitt er 40% af kostnaði, að hámarki kr. 100.000, hafi kostnaður verið hærri en kr. 110.000.
Styrkur er veittur einu sinni á þriggja ára tímbili.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Reikningur og greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. siðustu 6 mánuði
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna viðtalsmeðferðar hjá viðurkenndum sálfræðingi, félagsráðgjafa og geðhjúkrunarfræðingi. Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar.
Greitt er 40% af kostnaði, að hámarki kr. 9.900 per skipti. Styrkur er veittur fyrir allt að 20 skiptum  á hverju 12 mánaða tímbili.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Löggilt greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda, tímabil meðferðar, fjöldi skipta ásamt upphæðinni sem greidd var.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Greitt er 40% af útlögðum kostnaði, að hámarki kr. 82.500 á hverju 12 mánaða tímabili, vegna endurhæfingar og meðferðar hjá löggiltum meðferðaraðila sem hefur starfsleyfi frá landlækni eins og sjúkraþjálfara, kírópraktor/hnykkjara, iðjuþjálfa, heilsunuddara (skilyrði að viðkomandi sé í félagi heilsunuddara), sjúkranuddara og osteopata. Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Löggilt greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala beggja aðila, tímabil meðferðar, fjöldi skipta og upphæð sem greidd var.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum, fjarþjálfun, sundkort (6 mánaða kort og árskort, ekki stakir sundtímar), dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta.  Einnig er heimilt að styrkja áskriftargjöld vegna sýndarveruleikaforrita sem eru til þess fallin að stunda íþróttir t.d. golf, róður, hjól eða hlaup. Forrit sem notuð eru til gagnasöfnunar eins og t.d. Strava, Runkeeper eða MapMy Run eru ekki styrkhæf. Greiðslan nemur allt að 60% framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 50.000 á hverju 12 mánaða tímabili. (Breytt 18. jan. 2023)

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun þar sem fram kemur, nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.
  • Greiðslukvittun er jafnframt skilyrði í þeim tilvikum þar sem um er að ræða ótímabundinn samning, greitt er samkvæmt útlögðum kostnaði.

Skilyrði: Að sjóðfélagi hafi verið virkur félagsmaður við starfslok .
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum,  (2 mánaða kort eða árskort), sundkort (6 mánaða kort og árskort, ekki stakir sundtímar), dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta í allt að 5 ár frá starfslokum. Að því tilskyldu að það sé til 2ja mánaða eða lengur. Greiðslan nemur allt að helmingi framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 30.000 á hverju 12 mánaða tímabili. (Nýtt frá 1.jan 2018) Gildir eingöngu um þennan styrk. 

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun þar sem fram kemur tímabil þjálfunar, nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.
  • Greiðslukvittun er jafnframt skilyrði í þeim tilvikum þar sem um er að ræða ótímabundinn samning, greitt er samkvæmt útlögðum kostnaði.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k.  6 síðustu mánuði.
Til að jafna aðstöðu þeirra sem búa á landsbyggðinni tekur sjúkrasjóður þátt í ferðakostnaði þeirra sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði.  Sækja verður um styrk til Sjúkratrygginga íslands (SÍ).
Hafni SÍ greiðslu er greitt fyrir 40 til 100 km kr. 5500, 100 til 250 km. kr. 11.000, 250 til 400 km. kr. 18.700 og 400 km og lengra kr. 30.000.  Hámark er greitt fyrir 10 ferðir á ári.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.
  • Afrit af höfnunarbréfi SÍ.
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Styrkur er 50% af upphæð reiknings en þó aldrei hærri upphæð en kr.70.000 á hverju 12 mánaða tímabili.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðslukvittun fyrir námskeiði þar sem fram kemur, nafn þátttakanda, heiti námskeiðs, dagsetning námskeiðs og  nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.
  • Afrit af reikningi ef um skólagjöld er að ræða þar sem nafn námsmanns kemur fram.

Skilyrði: Að greitt hafi verið til Menntasjóðs rafiðnaðarins samfellt í a.m.k. síðustu 6 mánuði

Hámarksstyrkur er kr. 150.000 á ári til hvers félagsmanns. Endurgreitt er 75% af upphæð kvittunar, en aldrei hærri upphæð en kr.150.000. Ferðakostnaður er ekki greiddur. Ekki eru veittir styrkir til sambærilegs náms eða námskeiðs og er í boði hjá Rafmennt.
Styrkjum er úthlutað mánaðarlega. Umsóknir skulu hafa borist a.m.k. mánuði fyrr.

  • Ónýttir styrkir flytjast á milli ára, hámarks uppsöfnun er þrjú ár.

Skilyrði:

  • Að greitt hafi verið til Menntasjóðs rafiðnaðarins samfellt í a.m.k. 6 mánuði.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn: 

  • Greiðslukvittun þar sem fram kemur tímabil, nafn og kennitala seljanda og félagsmanns ásamt upphæðinni sem greidd var.

Nám á eftirtöldum sviðum er styrkt: 

  • Nám í stærðfræði sem eru viðbót við framhaldsskólanám og geta talist til undirbúnings háskólanáms eða eru á háskólastigi.
  • Framhaldsnám á sviði raungreina og eðlis- og efnafræði sem er viðbót við framhaldsnám og geta talist til undirbúnings háskólanáms eða eru á háskólastigi.
  • Tungumálanám til undirbúnings háskólanáms og talist geta á háskólastigi.
  • Upphafsnám á brautum á háskólastigi.
  • Annað nám sem veitir réttindi og/eða styrkir félagsmenn í störfum sínum.
  • Viðkennd námskeið í fagnámi sem ekki eru haldin hjá Rafmennt.     Ekki eru veittir styrkir til sambærilegs náms eða námskeiðs og er í
    boði hjá Rafmennt.
  • Heimilt er að veita styrki til að sækja sérhæfð fagnámskeið erlendis á sviðum sem ekki eru í boði innanlands. Upphæð styrks skal miðuð við ferða- og námskeiðskostnað en getur þó ekki numið hærri fjárhæð en kr 150.000. í þeim tilvikum þarf að skila staðfestingu á skráningu og greiðslu námskeiðsgjalds, flugmiða, kvittun vegna hótelkostnaðar og greinargerð þar sem fram kemur um hvað námskeið fjallar, námslengd og hvar og hvenær námskeiðið er haldið sem og lýsing á starfssviði umsækjenda.

Við andlát félagsmanns er greitt til aðstandanda allt að kr. 500.000.- (frá 1. jan. 2024) vegna útfararkostnaðar, enda hafi viðkomandi verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði þegar andlát hans bar að höndum.
Greiða eftirlifandi maka eða forráðamanni barns félagsmanns fyrir eitt barn undir 18 ára aldri á framfæri viðkomandi kr. 1.409.494.- og kr. 704.747.- með hverju barni eftir það(frá 1. jan. 2024). Heildarupphæð deilist jafnt á hvert barn.

Heimilt er að greiða vegna barna allt til 21 árs aldurs, enda hafi barn sannarlega verið á framfæri sjóðfélaga og ekki á vinnumarkaði.

Aðrar dánarbætur – félagsmenn hættir störfum vegna aldurs/örorku

Við andláts félagsmanns, sem ekki er á vinnumarkaði en var sjóðfélagi við starfslok er stjórn sjóðsins heimilt að greiða til dánarbús hins látna hluta dánarbóta

Skilyrði greiðslu skv. þessum lið er að hinn látni hafi verið sjóðfélagi samfellt síðustu 5 ár fyrir starfslok vegna aldurs/örorku, þ.e. var síðast félagsmaður aðildarfélags innan RSÍ*. Greiðsla til eftirlifandi maka eða barna innan 18 ára aldurs skal vera að hámarki kr. 250.000. Stjórn sjóðsins hefur heimild til þess að greiða hluta dánarbóta til annarra lögerfingja sem kosta útför hins látna, að hámarki kr. 166.700.

*Stjórn sjóðsins hefur heimild til að meta aðildarsögu félagsmanns til lengri tíma ef félagsmaður var síðast félagsmaður aðildarfélags innan RSÍ.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Yfirlit yfir framvindu skipta frá sýslumanni.

RSÍ vekur athygli félagsmanna sem eru sjóðfélagar hjá Birtu lífeyrissjóði að við fráfall sjóðfélaga getur eftirlifandi maki og/eða börn yngri en 18 ára sótt um maka- og/eða barnalífeyri hjá sjóðnum. Einnig getur verið réttur til fjölskyldubóta og er þar um sömu umsókn að ræða.
Sjá nánar á heimasíðu sjóðsins birta.is

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði

Heimilt er að veita fæðingarstyrk vegna fæðingar barns félagsmanns að upphæð 154.000 kr. fyrir hvert barn. Styrkupphæð miðast við hvert barn og að foreldri hafi stundað 100% vinnu sl. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna. Styrkurinn lækkar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi. Þurfi félagsmaður að draga úr vinnu eða hætta störfum vegna veikinda fyrir fæðingarorlof skal horfa til starfshlutfalls fyrir veikindin. Ef barn fæðist andvana eftir átján vikna meðgöngu er greitt 50% af styrk.

Foreldri þarf að vera í a.m.k. 75% fæðingarorlofi, miðað við einn mánuð eða 50% fæðingarorlofi í 6 mánuði eða lengur og greiða félagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum, til þess að eiga rétt á styrk. Fæðingarstyrkur á við um alla sem njóta réttinda til fæðingarorlofs úr Fæðingarorlofssjóði, þ.m.t. fæðingarorlof vegna ættleiðingar. Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24 mánaða aldri barns/barna.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðsluáætlun frá fæðingarorlofssjóði um töku fæðingarorlofs, þar sem hlutfall og lengd fæðingarorlofs kemur fram.
  • Staðfestingu um starfshlutfall (ATH fyllist út af vinnuveitenda) sl. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna. Sækja eyðublað
  • Vakin er athygli á því að styrkurinn fæst ekki greiddur fyrr en allt að þremur mánuðum eftir töku fæðingarorlof.

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði

Styrkur er 50% af upphæð reiknings en þó aldrei hærri upphæð en 25.000 kr einu sinni á ári.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Afrit af löggildum leigusamningi frá viðurkenndri ferðavagnaleigu,  nafn félagsmanns, kennitala, tímabil og upphæð þarf að koma fram á leigusamningi ásamt nafni og kennitölu leigusala.
  • Greiðslukvittun

Úthlutanir 2022

0 milljónir
Útgreiddir styrkir
0 milljónir
Líkamsræktarstyrkir
0 milljónir
Sjúkradagpeningar
0 milljónir
Viðtalsmeðferðastyrkir

Útgreiddir styrkir til félaga árið 2022

Tekjur og gjöld sjúkrasjóðs árið 2022